Opið hús: 28. apríl 2025 kl. 16:30 til 17:00.Opið hús: Nökkvavogur 36, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 28. apríl 2025 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
Valhöll kynnir fallega og bjarta fjögurra herbergja risíbúð í þríbýlishúsi í Nökkvavogi 36 í Vogahverfinu í Reykjavík. Samkvæmt Fasteignayfirliti frá HMS er eignin skráð 65,4 fm. en gólfflöturinn er um 80 fm.
Eignin skiptist í þrjú herbergi, stofu, eldhús og baðherbergi og sameiginlegt þvottahús í kjallara.
Íbúðin getur verið laus fljótlega.
Nánari lýsing:Gengið er inn um
sameiginlegan inngang með íbúð á miðhæð og þaðan upp teppalagðan stiga. Þar er komið inn á gang þessarar íbúðar, þar er fataskápur.
Stofan er í opnu rými með eldhúsinu með útgengi á suður svalir.
Eldhúsið er með eikarinnréttingu frá Brúnás með aðstöðu fyrir þvottavél og borðkrók.
Eitt herbergi er við hlið eldhússins með skápum undir súð.
Tvö önnur herbergi eru á hinum enda íbúðarinnar, annað með góðum fataskápum. Þessi herbergi eru samliggjandi og opið á milli þeirra.
Baðherbergið er með innréttingu, handklæðaofni, baðkari og upphengdu salerni.
Í kjallara er
sameiginlegt þvottahús.
Ágætt geymslupláss er undir súð íbúðarinnar og rúmgott geymslulofti yfir íbúð.
Fallegar viðarþiljur á gólfum í alrými og herbergjum og flísar á baðherbergi.
Húsið fékk ágætt viðhald fyrir um það bil 25 árum. Á þessum árum var járn á þaki hússins endurnýjað og þrjár hliðar hússins klæddar með stál klæðningu og gler íbúðarinnar endurnýjað. Frárennslislagnir undir húsi og út í götu voru endurnýjaðar um 1985. Þá var líka sett dren kringum húsið.
Engar samþykktar framkvæmdir en talað hefur verið um að múra útitröppurnar og múra og mála hliðiná á húsinu sem óklædd. Það er ekki verið að greiða í hússjóð.
Nánari upplýsingar veita:
Gylfi Þór Gylfason aðstoðarmaður fasteignasala í síma 770-4040 eða í tölvupósti á netfangið [email protected]Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða í tölvupósti á netfangið
[email protected]Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.