Arnarhraun 21, 220 Hafnarfjörður
64.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
101 m2
64.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1969
Brunabótamat
46.800.000
Fasteignamat
59.950.000
Opið hús: 01. apríl 2025 kl. 17:00 til 17:30.

Opið hús: Arnarhraun 21, 220 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 1. apríl 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Valhöll kynnir: Fallega, vel skipulagða og mikið endurnýjaða 3-4ra herbergja íbúð á 2. hæð í Arnarhrauni 21. Þvottahús innan íbúðar. Rúmgóðar norvestur svalir. Eignin hefur gengið í gegnum talsverðar endurbætur frá árinu 2023, þ.m.t. nýtt eldhús, baðherbergi endurbætt, ný gólfefni, fataskápar og innihurðar. Skipt var um þakklæðningu árið 2023. Eignin er upphaflega teiknuð sem 4ra herbergja en skipulagi hefur verið breytt þannig að í dag eru tvö svefnhergergi og inn af hjónaberbergi er sér fataherbergi. Eignin er skráð samtals 101 fm sem skiptist í íbúð á hæð 92,1 fm ásamt 8,9 fm sérgeymslu í kjallara.

Afhending getur átt sér stað nokkuð fljótt.


Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, baðherbergi, þvottahús, gang, svefnhergi og hjónaherbergi með fataherbergi inn af. Sérgeymsla í kjallara.

Nánari lýsing: 
Forstofa með fataskáp. Flísar á gólfi.
Eldhús með fallegri innréttingu og borðkrók við glugga. Ofn í vinnuhæð. Svört blöndunartæki og vaskur.
Stofa er rúmgóð og björt með útgengi á svalir sem snúa til norðvesturs.
Tvö svefnherbergi með parket á gólfi. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi. 
Baðherbergi er endurnýjað. Falleg innréttað með innréttingu, innbyggðum blöndunartækjum í sturtu. Upphengt klósett og handklæðaofn.
Þvottahús er innan íbúðar með flísum á gólfi.
Sérgeymsla er í kjallara, 8,9 fm. auk sameiginlegrar vagna- og hjólageymslu.

Framkvæmdir á vegum húsfélagsins:
Skipt var um þakklæðningu árið 2023.
Skólplagnir voru endurnýjaðar árið 2016.
Búið að samþykkja að fara í ástandsskoðun á ytra byrði hússins sumarið 2025.

Hluti af húsgögnum getur fylgt með í kaupunum skv. samkomulagi milli aðila.

Nánari upplýsingar veitir: Óskar H. Bjarnasen fasteignasali / lögmaður í síma 691-1931 eða á netfanginu [email protected]
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Google tag: ;