Falleg og mikið endurnýjuð neðri hæð við Hamarstíg 18 á Akureyri.
Eignin er með séreignarrýmum í kjallara, í tvíbýli á frábærum stað rétt við miðbæ Akureyrar.
Íbúðin stendur á fallegri lóð á horni Hamarstígs og Ásvegar og er samtals 98,1 fm. ásamt hlutdeild í sameign hússins.
Bílastæði fyrir framan hús.Íbúðin skiptist í, forstofu, eldhús, borðstofu, stofu, baðherbergi, stigi niður í kjallara en þar eru tvö stór svefnherbergi, geymsla og sameignarrými svo sem þvottahús og snyrting.
Allar nánari upplýsingar veitir Hörður Sverrisson, lgf s 899-5209, [email protected]Nánari lýsing :
l.hæð. Forstofa, flísar á gólfi og góður fataskápur
Eldhúsið er með fallegri nýlegri innréttingu, parket á gólfi og flísar á milli skápa.
Baðherbergið er nýlega uppgert, flísar á gólfi og veggjum. Góð sturta, falleg innrétting og handklæðaofn.
Stofan er björt og skiptist í borðstofu og stofu, útgengi á vestursvalir frá borðstofu, parket á gólfi.
Kjallari:Fallegur steyptur stigi liggur niður í kjallarann og er hann teppalagður.
Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð og fín, dúkur á gólfum herbergja og fataskápur í einu þeirra.
Geymsla með hillum og lökkuðu gólfi.
Þvottahús er sameiginlegt, rúmgott, sér hilllur ásamt geymsluskáp, lakkað gólf.
Gestasnyrting í sameign.Sérinngangur í kjallara að norðanverðuGeymsla og inntaksrými í sameign í kjallara.
Annað:-
Íbúð uppgerð að stórum hluta. ( 2022 - 2023) - Gólfefni nýleg að mestu.
- Nýlega uppgert baðherbergi.
- Ljósleiðari er komin í hús.
- Hellulagt bílastæði með hitalögn.
- Góður timburpallur sem snýr til suðurs í sameign.
- Stór og góður garður í óskiptri sameign.
Um er að ræða eigulega eign á frábærum stað sem vert að skoða.