Brúarholt 5, 355 Snæfellsbær
31.500.000 Kr.
Fjölbýli
4 herb.
123 m2
31.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1959
Brunabótamat
55.700.000
Fasteignamat
26.900.000



Valhöll fasteignasala Síðumúla 27 108 Reykjavík sími 5884477 kynnir: Efri hæðin í Brúarholti 5 í Ólafsvík er til sölu. Hæðin er skv. þjóðskrá alls 119,4 fm.

Gengið er úr andyri upp parketlagðar tröppur á rúmgóðan pall. Þar er rými fyrir tölvuaðstöðu og einnig er þar góður skápur. Af pallinum er gengið inn á hol og úr því er gengið til þriggja herbergja, stofu, baðherbergis og eldhúss. Í holi er skápur. Á öllum rýmum er nýlegt parket sem og á eldhúsi er einnig parket og þar inni er ágæt innrétting. Baðherbergið er ný flísalagt með baði og handklæðaofni. Á hæðinni er líka rúmgott þvottahús og innaf því er geymsla. Úr stofunni er gengið út á góðar vestursvalir. Á austur og suðurhlið eru nýlegir gluggar og aðrir gluggar eru í góðu lagi samkv seljanda. Austur og suðurhlið hússins er með stálklæðningu sem farið er að láta á sjá. Vestur og norðurhliðar hússins voru nú í desember  2023 klæddar með hvítu báruáli.
Loftplata hússins er steypt og þar yfir er gott geymsluloft. Úr íbúðinni sem lítur mjög vel út er mjög gott útsýni í allar áttir. Stutt er í alla þjónustu ma heilsugæslustöð, leikskóla, grunnskóla, sund, kirkju og fleira.
ATH: EIGNIN VERÐUR LAUS 1. DESEMBER.  VERÐ kr 31,5 millj 

ATH ATH: Í Snæfellsbæ eru mjög góðir bæði leik og grunnskólar og einnig er öflugt starf hjá íþróttafélögunum. Þá er Fjölbrautarskóli Snæfellsnes í Grundarfirði en þangað er um 20 mín akstur.

Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Pétur Steinar Jóhannsson Aðstoðarmaður fasteignasala í Ólafsvík í síma 893-4718 [email protected] Allar almennar upplýsingar veitir Ingólfur Gissurarsson löggiltur fasteignasali á Valhöll sími 588-4477.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
    

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Google tag: ;