Valhöll fasteignasala kynnir í einkasölu fallega og vel skipulagða eign við Hamarstíg 18, 600 Akureyri. Um er að ræða góða fjárfestingu til útleigu. Frábær staðsetning á rótgrónum stað í göngufæri við miðbæinn og þjónustu.Samkvæmt fasteignaskrá er eignin skráð 229,5 fm, þar af íbúð skráð 192 fm, og undirstöður fyrir bílskúr 37 fm.Íbúð á jarðhæð er 32,7 fm, íbúðarhluti á fyrstu hæð er 45,8 fm og á efri hæð 113,8 fm. Samtals192, fm.Allar nánari upplýsingar veitir Hörður Sverrisson, lgf s 899-5209, [email protected].
Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, 108 Reykjavík.Lýsing:Á fyrstu hæð eru tveir inngangar, tvö svefnherbergi og lítið baðherbergi, gengið er upp stiga á efri hæð hússins þar sem er eldhús, stofa, borðstofa og tvö svefnherbergi.
Á jarðhæð er sér inngangur og sameiginlegt salerni.Nánari Lýsing: Fyrsta og önnur hæð:Forstofa: Málaðar flísar með fataskáp.
Eldhús: Rúmgott og tengt við stofu. Góðar innréttingar. Harðparket á gólfi.
Stofa og borðstofa: Stór og glæsileg með harðparketi á gólfi, svalir út af borðstofu.
Hjónaherbergi: Harðparket á gólfi skápar, svalir.
Svefnherbergin eru fjögur: með harðparketi á gólfum og skápum í einu þeirra.
Baðherbergin eru tvö: á flísar að hluta til á báðum sturtuklefi í öðru þeirra.
Jarðhæð:Er með sér inngangi tvö herbergi þar tilvalin til útleigu, þar er sameiginlegt salerni.Þvottahús: Sameiginlegt í kjallara.Geymsla: Bílskúr: er ekki til staðar en sökklar/undirstöður að hluta. Endurnýja þarf byggingarleyfi.Garður og bílaplan: Bílaplan er sagt upphitað að hluta. Garður er gróinn og er sameiginlegur.
Gólfefni: Harðparket og flísar.
Hér er um að ræða mjög heillega eign á frábærum stað sem vert er að skoða.