Safamýri 54, 108 Reykjavík (Austurbær)
59.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
2 herb.
77 m2
59.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1964
Brunabótamat
32.190.000
Fasteignamat
49.300.000
Opið hús: 07. maí 2024 kl. 17:00 til 17:30.

Opið hús í Safamýri 54, 108 Reykjavík, Íbúð 001, þriðjudaginn 7. maí milli kl. 17:00 og kl. 17:30. Verið velkomin.

"Möguleiki á leigutekjum - Laus við kaupsamning"

Valhöll fasteignasala kynnir mjög fallega 2ja herbergja íbúð jarðhæð ásamt bílskúr á vinsælum stað miðsvæðis í Reykjavík.

Í heildina er eignin skráð 77,1 fm stærð sem skiptist í 53,1 fm íbúð, 2,2 fm geymslu og 21,8 fm bílskúr.

Í apríl 2024 var íbúðin endurnýjuð að innan á glæsilegan hátt og lítur hún vel út. Ekki hefur verið búið í íbúðinni frá því hún var endurnýjuð. 

Möguleiki er að leigja bílskúrinn út og fá þannig leigutekjur.

Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.


Nánari lýsing:
Eldhús: með fallegri hvítri innréttingu með innbyggðri uppþvottavél og ískáp, eyju með ofni og span helluborði og sætaplássi.
Stofa / borðstofa: með björtum glugga og útgengi út á lítill pall sem snýr í vestur og þaðan út á grasbala.
Baðherbergi: með "walk in" sturtu, skáp undir og yfir vask, upphengdu salerni og flísum á veggjum og gólfi.
Svefnherbergi: rúmgott svefnherbergi með góðu skápaplássi.
Geymsla: 2,2 fm sérgeymsla á sömu hæð og íbúð fylgir með.
Hjóla- og vagnageymsla: sameiginleg jarðhæð
Þvottahús: sameiginlegt á jarðhæð með tækjum sem húsfélagið á og fólk pantar tíma í.

Bílskúr: bílskúrinn er 21,8 fm á stærð með rafmagni.

Hússjóður: í dag er verið að greiða kr. 11.044 kr. í hússjóð fyrir húsfélagið í Safamýri 54 og 6.075 kr. fyrir húsfélagið í Safamýri 52-56, samtals 17.119 kr. á mánuði.

Endurnýjanir í apríl 2024:
Baðherbergi endurnýjað (flísar 60x60 frá Álfaborg). Blöndunartæki í vaski og sturtu frá Gröhe. Spegill með lýsingu.
Eldhús endurnýjað með innréttingu frá Ikea og borðplötu frá Byko. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Veggpanill úr hnotu settur framan á eyju.
Nýjar innihurðir (Bauhaus).
Nýtt parket (Quickstep frá Harðviðarvali).
Nýtt rafmagn dregið í allar dósir og settir nýjir slökkvarar og tenglar). Einnig sett nýtt tengibox fyrir helluborð og eldavél.
Endurnýjaðar neysluvatnslagnir og ofn inn á á baði.
Íbúðin öll nýmáluð (1/2 hör) og gluggar málaðir hvítir.
Nýr dyrasími.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali / lögmaður í síma 699 4407 eða [email protected].

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.






 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Google tag: ;