Fasteignasalan Valhöll og Elín Viðarsdóttir lgfs, [email protected], gsm. 695-8905, kynna í einkasölu Lóð, sökkul og teikningar fyrir fallegt 3ja - 4ra herbergja einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr, á fallegri jaðarlóð á Eyrarbakka. Húsið er byggt úr timbri og klætt að utan með áli og viðarklæðningu en báraðri álklæðningu á þaki. Hægt er að hafa áhrif á efnisval utanhússklæðningar ef vill í samráði við hönnuð.
LÓÐ, STEYPTUR SÖKKULL OG TEIKNINGAR - Einbýlishús á einni hæð með innangengum bílskúr - Íbúðarhlutinn er 135 fm og bílskúrinn er 41,7 fm., samtals því.176,7 fm. - 2 - 3 rúmgóð svefnherbergi (hjónasvíta og 2 önnur ef vill) - Hiti í gólfum. - 2 baðherbergi - Timburpallur 71,7 fm - Þvottahús með innréttingu - Innangengur bílskúr. - Jaðarlóð með óhindruðu útsýni
Um er að ræða sökull fyrir 176,7 einbýlishús á frábærum stað á Eyrarbakka. Búið er að greiða gatnagerðargjöld og teikningar. Lóðin er tilbúin til afhendingar. Samkvæmt teikningu skiptist eignin í ; Forstofu, eldhús, stofu, 2 baðherbergi, þvottahús, 1-2 herbergi, hjónasvítu (baðherbergi og fataherbergi) aulk bílskúrs.
Allar nánari upplýsingar veitir Elín Viðarsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 695-8905 eða [email protected]