Fellsmúli 17, 108 Reykjavík (Austurbær)
68.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
117 m2
68.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1965
Brunabótamat
53.110.000
Fasteignamat
67.300.000

Valhöll fasteignasala kynnir rúmgóða og bjarta 3ja herbergja íbúð á 4. hæð (efstu hæð) með góðu útsýni á vinsælum stað miðsvæðis í Reyjavík. Íbúðinni fylgir bílskúr með gryfju.

Í heildina er eignin skráð 117,7 fm á stærð sem skiptist í 93,5 fm íbúð og 24,2 fm bílskúr. Að auki fylgir eignir sérgeymsla í kjallara sem virðist ekki vera skráð inn í stærð eignarinnar.

Húsið hefur fengið ágætt viðhald en árið 2012 var það klætt að utan með sléttri álklæðningu og skipt um glugga, gler og svalahurð. 

Stutt í leik- og grunnskóla, verslun, þjónustu og stofnbrautir.

Nánari lýsing:

Hol / gangur: með fataskápum.
Eldhús: með nýlegri innréttingu og tækjum, eyju, innbyggðri uppþvottavél, miklu skápaplássi og góðu búri.
Stofa / borðstofa: mjög rúmgóð í opnu rými með björtum gluggum og útgengi á suð-vestur svalir.
Baðherbergi: með nýlegri innréttingu, speglaskáp, baðkari með lokuðum klefa, aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara og flísar á gólfi.
Svefnherbergi I: rúmgott með nýlgum opnum skápum.
Svefnherbergi II: mjög rúmgott með nýlegum opnum skápum.
Geymsla: sérgeymsla í kjallara.
Þvottahús: sameiginleg í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla: sameiginleg í kjallara.

Dúkur er á gólfum nema flísar á baðherbergi.

Bílskúr: 24,2 fm bílskúr í bílskúrslengju á móti húsinu, annar frá vinstri, með rafmagni og hita. Bílskúrinn er með gryfju. Hann er núna í útleigu fyrir 50 þús á mánuði.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali / lögmaður í síma 699 4407 eða [email protected].

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.



 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Google tag: ;