Skyggnisbraut 26-28, 113 Reykjavík (Grafarholt)
74.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
114 m2
74.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2016
Brunabótamat
60.690.000
Fasteignamat
76.450.000

Valhöll fasteignasala kynnir fallega og bjarta 3ja herbergja endaíbúð með miklu útsýni á Skyggnisbraut 26-28 í Úlfarsárdalnum í Reykjavík. Íbúðinni fylgir stæði í opinni bílageymslu.

Um er að ræða rúmgóða 114,2 fm 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi byggðu árið 2016.

Stutt er í leik- og grunnskóla, sundlaug, íþróttasvæði Fram og falleg útivistarsvæði í Úlfarsársdal, Úlfarsfell og Hafrafellsvatn.

Fasteignamat er 76.450.000 kr.

Þetta er falleg íbúð sem vert er að skoða.


Nánari lýsing eignar:
Anddyri Parket á gólfi , fínn forstofuskápur.
Eldhús Parket á gólfi , rúmgott  eldhús með góðu skápaplássi. 
Stofa og borðstofa stórt opið rými með parketi á gólfi og fallegu útsýni.
Baðherbergi flísar á gólfi og veggjum , sturta , upphengt salerni með viðarinnréttingu.
Þvottahús er inná baðherbergi og er innrétting í sama stíl og baðinnrétting.
Geymsla er innan íbúðar, ekki gluggi  (möguleiki á hafa sem vinnuherbergi / barnaherbergi.)
Svefnherbergin eru tvö og er hjónaherbergið rúmgótt og með góðu skápaplássi. Einnig er parket á gólfi í herbergjum.
Svalir útsýnissvalir yfir Úlfarsárdal. Útgent úr eldhúsi.
Bilageymsla stæði í bilakjallara.
Sameign fín hjólageymsla / sameign (snyrtileg.)

Allar nánari upplýsingar veita:
Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali og lögmaður í síma 699-4407 eða á netfanginu [email protected]
Gylfi Gylfason aðstoðarmaður fasteignasala í síma 770-4040  eða á netfanginu [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Google tag: ;