Þórðarsveigur 18, 113 Reykjavík (Grafarholt)
63.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
89 m2
63.900.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
2004
Brunabótamat
50.230.000
Fasteignamat
62.300.000

Eignin er seld og er í fjármögnunarferli

Fasteignasalan Valhöll og Elín Viðarsdóttir lgfs, [email protected], gsm. 695-8905 kynna í einkasölu, Þórðarsveig 18;
Fallega og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á þriðju hæð, auk stæðis í bílskýli.
Um er að ræða lyftublokk m. innangenga bílageymslu og  þvottahús og geymslu innan íbúðar.

- Eignin er skráð skv. ÞÍ 89,0 fm (Íbúð 84,9 fm + geymsla 4,1 fm)
- 3ja hæð
- Stæði í bílskýli 
- Rafhleðsla í stæði.
- Lyfta endurnýjuð  í feb.2024.
- 2 rúmgóð svefnherbergi
- Þvottahús innan íbúðar
- Geymsla innan íbúðar auk annarar í sameign
- 2021 var farið í að skipta út þaki, þakpappi endurnýjaður.


Eignin skiptist í: Forstofu, gangur/hol, eldhús, stofa/borðstofa, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu í sameign.

Nánari lýsing: 

Forstofa: Af stigagangi er gengið inn í parketlagða forstofu með fataskáp, forstofa opnast annars vegar inn í þvottahús og geymslu og hins vegar inn á gang/hol og inn í stofurými eignarinnar.
Gangur/hol: Parketlagt opið við stofu/eldhús/gang. Af því eru herbergin 2 og baðherbergið.
Stofa/borðstofa: Parketlögð og björt. Gluggarnir eru stórir. Útgengi út á skjólgóðar SV svalir, fallegt útsýni.
Eldhús: Opið við stofu. Flísalagt. Innrétting úr kirsuberjavið á einum vegg og hvítri að hluta á hinum.Gert er ráð fyrir uppþvottavél. 
2 Herbergi: Parketlögð. Mjög rúmgóð, bæði með skápum.
Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og veggjum, vaskinnrétting, upphengt salerni og baðkar. Kirsuberjaspónn er á rúmgóðri vaskinnréttingu. Opnanlegur gluggi er á baði.
Þvottahús: Flísalagt. Opnanlegur gluggi. 
2 geymslur fylgja eigninni, annars vegar innan íbúðar og og hins vegar á jarðhæð
Stæði í bílageymslu: Bílageymslan er með góðu aðgengi (lyfta) og upphituð. Komið er tengi fyrir rafhleðslu.
Stigagangur er snyrtilegur og vel um gengin.
Lóð: Lóðin er sameiginleg með leiktækjum.

Samantekt: Í heildina er um að ræða vel um gengna og fallega eign sem er í lyftuhúsi, með stæði í lokaðri innangengri  bílageymslu.
Góð staðsetning; leikskólar auk grunnskóla eru í næsta nágrenni. Stutt í íþróttamiðstöð og matvöruverslanir.

Allar nánari upplýsingar veitir  Elín Viðarsdóttir lgfs, [email protected], gsm. 695-89805

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Google tag: ;