NÝTT Í SÖLU - OPIÐ HÚS.
HVASSALEITI 22. FALLEG RÚMGÓÐ 94 FM 3-4RA HERBERGJA ENDAÍBÚÐ Á EFSTU HÆÐ MEÐ BÍLSKÚR OG MIKLU ÚTSÝNI, MIÐSVÆÐIS Í REYKJAVÍK.
Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími:588-4477 kynnir: Björt og falleg, velskipulögð 3ja herbergja endaíbúð á 4.hæð (efstu) með glugga á 3 vegu, 93,7 fm ásamt 21,6 fm endabílskúr í lengju gengt húsinu. Frábært útsýni yfir Borgina, Snæfellsnes, Esjuna og víða. Mögulegt er að gera 3ja svefnherbergið í íbúðinni í hluta af stofunni án þess að það verði eithvað klúður. Mjög góð staðsetning miðsvæðis, örstutt í skóla, leikskóla, verslanir, þjónustu, stofnæðar og nokkur skref eru í Kringluna. Mjög gott fjölbýlishús þar sem miklar endurbætur hafa farði fram utanhús og á sameign. SKIPULAG: Forstofa með speglaskápum. Hol. Eldhús með borðkrók, góð hvít/beiki innrétting. Stofa og borðstofa með útgengt á góðar vestur svalir. Fallegt mikið útsýni úr allri stofunni og eldhúsinu sem eru með endaglugga. Baðherbergi flísalagt með baðkari, glugga, handklæðaofni, vaskinnréttingu og skápum á vegg ásamt sérlögn fyrir þvottavél. En möguleiki er að gera góða aðstöðu fyrir þvottavél og þurkara þar sem veggskápurinn er bakvið hurðina inná baðið. Einnig hægt að hafa þvottavél í eldhúsi. Hjónaherbergi með miklum beikiskápum og gott barnaherbergi með beikiskápum. Nýlegt parket er á allri íbúðinni nema flísar á baði. Sérgeymsla í kjallara. Sameiginlegt þvottaherbergi í kjallara og sameiginleg hjólageymsla. Bílskúr í norðurenda bílskúralengju hinumegin við bílaplan hússins sem er með rafmagni, ef ekki eru not fyrir hann þá eru góðir leigumöguleikar á svona bílskúr á þessum stað.
Endurbætur í sameign og utanhúss skv. upplýsingum frá seljendum= Gluggar og gler endurnýjaðir í sameign á austurhlið (2012). Múrviðgerðir og málun, skipt um glugga og gler á suðurgafli og austurhlið (2016-2017). Skipt um þakpappa, þakjárn og túður (2016-2017). Dren endurnýjað, steyptar nýjar tröppur fyrir framan anddyri, stétt fyrir framan hús endurnýjuð með hitalögn (2017-2018).
Ný teppi sett á stigagang og málað. Ný eldvarnarhurð sett í íbúð (2024). Múrviðgerðir og málun á norðurgafli og vesturhlið, skipt um gluga, gler og svalahandrið, hurðir endurnýjaðar (2021-2022). Stofnlagnir undir húsinu hafa verið endurnýjaðar sem og kaldavatnslagnir í sameign.Skipt um rofa og tengla (2021) Skipt um gólfefni (2021) Skipt um sólbekki á norður og vestur hlið, innhurðir og ofnar spreyjaðir.
FALLEG ÍBÚÐ Á GÓÐU VERÐI MEÐ MIKLU ÚTSÝNI OG BÍLSKÚR Á FRÁBÆRUM STAÐ
Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Heiðar Friðjónsson löggiltur Fasteignasali s.693-3356
[email protected] VALHÖLL FASTEIGNASALA SÍÐAN 1995 - FARSÆL OG ÖRUGG FASTEIGNAVIÐSKIPTI - LÖGGILTIR FASTEIGNASALAR OG LÖGFRÆÐINGAR ANNAST ÞÍN SÖLUMÁL HJÁ OKKUR. VALHÖLL ER FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI SKV, GREININGU CREDITINFO 2015 til 2022, EÐA 8 ÁR SAMFLEYTT, EN AÐEINS 2 % FYRIRTÆKJA Á ÍSLANDI NÁÐU ÞEIM GÆÐASKILYRÐUM OG FYRIRMYNDARFYRIRTÆKI Í REKSTRI SKV, GREININGU VIÐSKIPTABLAÐSINS OG KELDUNAR 2017-2022.