*** NÝR ÁFANGI Í SÖLU - GLÆSILEG RAÐHÚS TILBÚIN TIL AFHENDINGAR - SÝNINGARÍBÚÐ TILBÚÍN - SÝNUM SAMDÆGURS! ***
Valhöll fasteignasala kynnir til sölu glæsilegt nýtt fimm herbergja endaraðhús við Staðarborg 20 í Grænubyggð sem er nýtt og spennandi fjölskylduhverfi við sjávarsíðuna í Vogum á Vatnsleysuströnd. Aðeins um 15 mín frá höfuðborgarsvæðinu. Glæsilegt óheft sjávarútsýni af efri hæð hússins. Skipulag er sérlega gott og hagkvæmt og hentar fjölskyldum afar vel. Fjögur svefnherbergi. Tvö baðherbergi og sér þvottahús. Bjart og rúmgott alrými og sér garður með lagnir fyrir heitan og kaldan pott.Sjá myndband af Verkefninu með að smella
hér!Upplýsingar veita Óskar H. Bjarnasen, lögmaður / löggiltur fasteignasali í síma 691-1931 eða [email protected] og Gylfi Gylfason aðstoðarmaður fasteignasala í síma 7704040 eða [email protected]Staðaborg - verkefnið- Íbúðum er skilað fullbúnum með vönduðum gólfefnum (gegnheill askur og flísar).
- Vandaðar innréttingar eru frá Parka og er kvarts steinn á borðum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
- Aukin lofthæð er í flestum rýmum og lýsing tilbúin í öllum rýmum.
- Á efri hæð eru rúmgóðar svalir og glæsilegt sjávarútsýni.
- Húsin er klædd að utan og viðhaldslétt.
- Tvö bílastæði fylgja enda íbúðum.
Nánari lýsing:Gengið er inn í
rúmgóða forstofu með góðum fataskáp/geymsluskápSvefnherbergi I er inn af forstofu.
Gestasalerni er með fallegum flísum á gólfi og á veggjum upp í loft. upphengt salerni, vaskur með hvítri innréttingu ásamt handklæðaofni.
Alrými er opið og rúmgott og samanstendur af stofu/borðstofu og eldhúsi. Verulega aukin lofthæð yfir hluta rýmisins með fallegum gluggum á 1. og 2. hæð. Úr stofu er útgengi út í
sér garð með tengi fyri heitum og köldum potti. Fallega hannaður skjólveggur er milli íbúða.
Eldhús er með glæsilegri innréttingu frá Parka sem nær upp í loft með eyju og fallegum háf. Kvarts steinn á borðum. Undirfelldur vaskur. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja. Eldhústæki eru frá Electrolux.
Glæsilegur stigi úr Aski er milli hæða sem setur fallegan svip á rýmið.
Á efri hæð er
rúmgott hjónaherbergi með útgengi á vestursvalir. Glæsilegt sjávarútsýni.
Svefnherbergi II og IV eru bæði rúmgóð.
Baðherbergið er með fallegum flísum á gólfi og á veggjum upp í loft. Sturta með sturtugleri, upphengt salerni, vaskur með hvítri innréttingu ásamt handklæðaofni.
Sér þvottaherbergi með fallegum flísum á gólfi og á veggjum upp í loft.
GrænabyggðGrænabyggð er nýtt spennandi og fjölskylduvænt hverfi við sjávarsíðuna í nálægð við höfuðborgarsvæðið (aðeins um 15 mín akstursfjarlægð) og í hina áttina er Keflavíkurflugvöllur í svipaðri fjarlægð, en gert er ráð fyrir mikilli fjölgun starfa í tengslum við flugvöllinn á komandi árum. Þá eru fjölmörg störf tengd ferðaþjónustu á svæðinu og má til dæmis nefna Bláa Lónið í því samhengi. Hverfið er tengt núverandi Vogabyggð og því stutt í alla helstu þjónustu. Gert er ráð fyrir að í Grænubyggð verði um 1500 íbúar og er áform um að reisa þar alls um 800 íbúðir á næstu árum. Til stendur að stækka núverandi skóla og reisa nýjan leikskóla í Grænubyggð samhliða stækkun hverfisins. Íþróttafélagið Þróttur sinnir öflugu íþróttastarfi á svæðinu. Verslunar- og þjónustuaðilar frá höfuðborgarsvæðinu, þar á meðal Krónan, eru nú þegar farnir að þjónusta íbúa sveitarfélagsins. Grænabyggð er vel staðsett fyrir þá sem vilja rólegt og fjölskylduvænt umhverfi. Stutt er í óspillta náttúru, fallegar gönguleiðir og allir möguleikar til fjölbreyttrar útivistar og tómstunda. Þá má ekki gleyma Kálfatjarnarvelli sem er glæsilegur níu holu golfvöllur með fyrirmyndaraðstöðu fyrir kylfinginn.
Sjá nánar vefsíðu Grænubyggðar,
https://graenabyggd.is/Upplýsingar veita Óskar H. Bjarnasen, lögmaður / löggiltur fasteignasali í síma 691-1931 eða [email protected] og Gylfi Gylfason aðstoðarmaður fasteignasala í síma 7704040 eða [email protected]