Valhöll fasteignasala kynnir rúmgóða og bjarta 3ja herbergja íbúð á 4. hæð (efstu hæð) í lyftuhúsi í Tröllakór 5-7 í Kópavogi. Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni. Heildareignin er skráð 103,7 fm á stærð og skiptist í 92,8 fm íbúð og 10,9 fm sérgeymslu. Sérinngangur af svalagangi.
Eignin er vel staðsett og er m.a. örstutt í leik- og grunnskóla, verslun, apótek, sundlaug, íþróttaaðstöðu HK Kórnum, Gerplu fimlekafélag, hestamennsku og Ara sportbar. Þá er Elliðavatn í næsta nágrenni ásamt útivistarsvæðum í Heiðmörk og Guðmundarlundi.Eignin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, stofu, þvottahús, geymslu og bílastæði í bílakjallara.
Nánari lýsing:Anddyri: með flísum á gólfi.
Eldhús: með viðarlitaðri innréttingu með góðu skápaplássi, ofn í vinnuhæð, innbyggðri uppþvottavél og flísum á gólfi.
Stofa / borðstofa: með flísum á gólfi og útgengi út á rúmgóðar svalir (10,4 fm).
Svefnherbergi I: með miklu skápaplássi og parketi á gólfi.
Svefnherbergi II: með parketi á gólfi.
Baðherbergi: með sturtuklefa, upphengdu salerni, skolskál, innréttingu undir vaski, handklæðaofni og flísum á veggjum og gólfi.
Þvottahús: með vaski, hillum og flísum á gólfi.
Geymsla: sérgeymsla í kjallara.
Bílastæði: bílastæði í bílageymslu og opin útistæði á lóð.
Hússjóður: Er núna 31.208 kr.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali / lögmaður í síma 699 4407 eða [email protected].Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.