Flatahraun 1, 220 Hafnarfjörður
72.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
119 m2
72.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2006
Brunabótamat
56.530.000
Fasteignamat
68.100.000

Mjög gott verð - Stæði í bílageymslu - Rúmgóð herbergi

Valhöll fasteignasala kynnir fallega og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í góðu lyftuhúsi við Flatahraun 1 í Hafnarfirði. Íbúðinni fylgir stæði í upphitaði bílageymslu. 

Eignin er alls skráð 119,2 fm og eru allir fermetrar innan eignar.

Þetta er góð eign sem vert er að skoða á þessum vinsæla stað í Hafnarfirði þar sem stutt er í alla helstu þjónustu s.s verslarnir, matsölustaði, þjónustu og helstu stofnbrautir.

Nánari lýsing:

Forstofa: með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi I: með fataskápum og parketi a gólfi. 
Svefnherbergi II: með fataskápum og parketi a gólfi. 
Svefnherbergi III: með fataskápum og parketi a gólfi. 
Baðherbergi: með innréttingu, baðkari, handklæðaofni og flísum á gólfi og veggjum.
Stofa: rúmgóð og björt stofa með parketi á gólfi og útgengi á suð-vestur svalir.
Eldhús: með dökkri innréttingu og opnum hillum, stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél og parket á gólfi. Nýleg tæki og borðplata.
Þvottahús: innan íbúðar með stæði fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaski, hillum og þvottasnúrum.
Geymsla: rúmgóð geymsla er innan íbúðar með skápumog flísum á gólfi.
Bílastæði: í upphitaðri bílageymslu, vel staðsett og stutt frá innganginum, góð þvottaaðstaða fyrir bíla.
Hjóla- og vagnageymsla: sameiginleg í kjallara.

Húsgjöld: Samkvæmt yfirlýsingu húsfélagsins í Flatahrauni 1 dags. 25.5.2023 eru húsgjöldin 33.388 kr. á mánuði. Innifalið í þeim er framkvæmdarsjóður, þrif á sameign, rafmagn í sameign, allur hitakostnaður, laun húsvarðar, þrif á sorpgeymslu. 

Nánari upplýsingar veitir:
Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögmaður í síma 699-4407 eða á netfanginu [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.