Engihlíð 6, 355 Snæfellsbær
49.800.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
5 herb.
174 m2
49.800.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1966
Brunabótamat
68.900.000
Fasteignamat
33.650.000

Valhöll fasteignasala Síðumúla 27 108 Reykjavík sími 5884477 kynnir: Engihlíð 6  Ólafsvík.  Fallegt og velskipulagt einbýlishús á frábærum ÚTSÝNISSTAÐ í Ólafsvík.  Mjög gott  tveggja hæða hús á besta stað með einstöku útsýni frá austri til vesturs, yfir Breiðafjörðin og Barðaströndina.

Skipulag: Efri hæðin er 115,7 fm og neðri hæðin 58,5 fm með bílskúr og húsið alls 174,2fm . Efri hæðin skiptist í forstofu, eldhús, hol, rúmgóða stofu með sjónvarpsholi. Þá eru á efri hæðinni þrjú herbergi og baðherbergi. Möguleiki er á að bæta við fjórða herberginu. Forstofan, eldhúsið og baðherbergið er flísalagt og þar inni er baðkar og handklæðaofn. Sjónvarpsholið, stofan og herbergin eru parketlögð. Úr stofunni er gengið út á stóran, rúmgóðan, velgerðan og veðursælan sólpall með góðum skjólgirðingum.  
Úr forstofunni er gengið niður á neðri hæðina og þar er rúmgott herbergi með parketi á gólfi, klósett með sturtu, geymsla og gott þvottahús með útgengi. Bílgeymslan er 29,4 fm.
ANNAÐ: Húsinu hefur verið vel við haldið alla tíð og samkvæmt upplýsingum frá seljanda eru flestir gluggar nýlegir í húsinu. Þá eru nýlegir ofnar sem og eldhúsinnréttingin. Í húsinu er steypt loftplata og á þakinu er nýlegt járn. Húsið er klætt með steni klæðningu að mestu. Stutt er í alla þjónustu ss skóla, leikskóla, sundlaug verslun, pósthús og fleira.  VERÐ kr 49,8 millj

Milligöngu um skoðun annast Pétur Steinar Jóhannsson Aðstoðarmaður fasteignasala í Ólafsvík í síma 893-4718 [email protected]    Allar nánari upplýsingar upplýsingar veitir Ingólfur Gissurarsson löggiltur fasteignasali á Valhöll sími 588-4477  [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.