Valhöll kynnir: bjarta og fallega 3ja herbergja útsýniíbúð á efstu hæð við Lómasali þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Glæsilegt útsýni er úr stofu og af svölum yfir hluta Kópavogs og út á sundin. Eigninni fylgir stæði í bílageymslu með hleðslustöðu fyrir rafmagnsbíl.Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen í síma 691-1931 eða [email protected]Nánari lýsing:Gólfefni íbúðar er parket og flísar. Innfeld lýsing er í alrými.
Forstofa: flísalögð með fataskáp.
Stofa/borðstofa: björt og rúmgóð, útgengt á stórar útsýnissvalir. Glæslilegt útsýni.
Eldhús: er með glugga, snyrtileg L-innrétting með góðu skápaplássi, ofn í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél og flísar á gólfi. Uppþvottavél og ísskápur fylgja.
Hjónaherbergi, rúmgott og bjart með stórum fataskáp.
Barnaherbergi með fataskáp.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, upphengdu salerni og stóru hornbaðkari með sturtuaðstöðu.
Þvottahús með skolvask og hillum, flísar á gólfi.
Sér
geymsla í kjallara (6,9 fm)
Stæði í bílageymslu, þvottaaðstaða í bílageymslu.
Sameign er sérlega snyrtileg.
Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen í síma 691-1931 eða [email protected]