Urðarbrunnur 110 - sk.ó. , 113 Reykjavík (Grafarholt)
138.000.000 Kr.
Parhús/ Parhús á tveimur hæðum
7 herb.
205 m2
138.000.000
Stofur
3
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
4
Inngangur
Sér
Byggingaár
2022
Brunabótamat
0
Fasteignamat
73.100.000

NÝTT Í SÖLU  Í  ÚLFARSÁRDAL -  STÓRGLÆSILEGT  205,8 FM PARHÚS Á FRÁBÆRUM  ÚTSÝNISTAÐ. HÚSIР SELST  TILBÚIР AР UTAN OG TILBÚIÐ TIL INNRÉTTINGA AÐ INNAN.  AFHENDING FLJÓTLEGA EFTIR KAUPSAMNING, ÁSETT VERÐ 138 MILJ, SKIPTI  Á ÓDÝRARI EIGN MÖGULEG. 

Valhöll fasteignasala og Heiðar Friðjónsson lögg. fast, s. 693-3356 kynnir Urðarbrunnur 110, Parhús  á frábærum stað í Úlfarsárdal. Húsið er 205,8 fm með innbyggðum bílskúr. Húsin eru einangruð að utan og klædd með sléttri álklæðingu. Um er að ræða staðsteypt hús á tveimur hæðum. Fyrir aftan húsiðer óbyggt svæði og útsýnið er mjög fallegt til suðurs í átt að Hólmsheið og Bláfjöllum.

Skipulag húsanna: Neðri hæð skiptist í hjónaherbergi með baðherbergi innaf og fataherbergi.  Þrjú barnaherbergi,  tvö baðherbergi, þvottarhús og sjónvarpsrými af ganginum er gengið út á pall.  Efri hæð skiptist í forstofu, innangengt í bílskúr, baðherbergi, eldhús og stofur, gengið út á suður svalir úr stofu.    ATH. tölvuteiknaðar myndir eru settar fram fyrir fólk til glöggvunar.  Meðfylgjandi er linkur sem sýnir hvernig húsið getur litið út þegar það er fullbúið: Smellið hér:  

Húsin skilast á eftirfarandi hátt, ekki seinna en einum mánuði eftir kaupsamning: Húsin eru fullbúin að utan, einangruð  og klædd með grátóna sléttri álklæðningu frá Áltak, plan fyrir framan er hellulagt(Rómarsteinn frá BM Vallá) með sjóbræðslu undir sem er tengd og frágengin.  Þrefalt  tunnuskýli við húsið án hurða.  Öll útiljós komin og tengd. Lóðin er fullbúin, búið er að hlaða stiga að utan á milli hæða og verður glerhandrið á honum. Fyrir aftan hús er búið að gera timburpall og ganga frá sléttri lóð með lyngþökum, við pallinn eru ídráttarrör fyir heitan pott og frárennsli komið að palli. Timburveggur á milli húsa.  Brekka frá sléttum fleti niður að hæðarpunkti er frágengin en á eftir að sá í hana.  Rafmagn er allt ídregið í allar dósir en án tenglaefnis, og loft frágengin en ljós ekki komin. Taflan skilast að mestu tilbúin og er komin vinnulýsing.  Allar hita og neysluvatnslagnir frágengnar að tækjum. Á þremur baðherbergjum beggja hæða er búið að innmúra veggfestingar fyrir salerni, og tengja, og í báðum baðherbergjum neðri hæðar eru botnar fyrir innfeld blöndunartæki frágengin og tengd. Gólfhiti frágengin en án stýringa. Búið er að setja upp alla milliveggi, og eru allir veggir húsins spartlaðir og grunnmálaaðir. Báðar hæðir eru flotaðaðr með Anhydrít.  Staðsteyptur stigi á milli hæða. Þak er einhalla steypt, viðsnúið með tvöföldu lagi af pappa og einangrun undir fargi. Allir gluggar og hurðir eru ál-timburgluggar frá Berki, bílskúrshurð með opnara verður sett í fyrir afhendingu

Þetta hús Urðarbrunnur 110 er  205,8 fm og af því er bílskúrinn 22,4 fm. allar uppl. um eignina veitir Heiðar Friðjónsson í s:693-3356 eða á [email protected]

Úlfarsárdalur er nýjasta hverfi borgarinnar.  Eitt af einkennum hverfisins er mikil nánd við náttúruna og í göngufæri við hverfið eru náttúruperlur eins og Úlfarsfellið, Reynisvatn, Hafravatn og Hólmsheiðin.  Hverfið státar einnig af metnaðarfullu starfi, leikskóla, grunnskóla, frístundaheimili, öflugri félagsmiðstöð, íþróttafélaginu Fram, flottri sundlaug og bókasafni svo eithvað sé nefnt.





 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.